Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Bókasafn Reykjanesbæjar

Bókasafn Reykjanesbæjar

Laugardagar eru fjölskyldudagar á Bókasafni Reykjanesbæjar. Auk þúsunda bóka er dótakista tekin fram á laugardögum og hægt er að lesa og leika með þroskandi leikföng.

Spilum saman: Annan laugardag hvers mánaðar eru hin ýmsu borðspil tekin fram og fjölskyldur hvattar til að mæta og spila saman.

Litum saman: Fyrsta laugardag hvers mánaðar eru fjölbreyttar litabækur, blöð og litir í boði fyrir alla fjölskylduna. Það getur haft hugleiðandi áhrif að lita.

Notaleg sögustund: Síðasta laugardag hvers mánaðar kl. 11.30 les Halla Karen og syngur fyrir börn og fullorðna. Halla Karen Guðjónsdóttir hefur lengi verið í Leikfélagi Keflavíkur og segir sögur á leikrænan hátt. Sögustund Höllu Karenar er með vinsælli viðburðum í Bókasafninu og alltaf mikil gleði hjá yngstu kynslóðinni.

Bókabíó: Einn föstudag í mánuði kl. 16.30 er haldið Bókabíó í miðju bókasafnsins þar sem sýnd er mynd sem hefur verið gerð eftir bók. Sýndar eru barna-, unglinga- og fjölskyldumyndir.

Heilakúnstir: Sjálfboðaliðar á vegum Rauða Kross Suðurnesja bjóða upp á heimanámsaðstoð fyrir börn í 4.-10. bekk grunnskóla þriðjudaga og fimmtudaga kl. 14.30-16 í allan vetur. Ekki þarf að skrá sig og eru allir velkomnir.

Foreldramorgnar: Á fimmtudögum kl. 11 eru Foreldramorgnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Boðið er upp á fræðsluerindi annan hvern fimmtudag og notalegt spjall hinn fimmtudaginn. Öll fræðsluerindi tengjast foreldrahlutverkinu og barnauppeldi á einhvern hátt og eru mæður og feður ungra barna sem og verðandi foreldrar hjartanlega velkomin. Foreldramorgnar hafa verið mjög vinsælir meðal foreldra í fæðingarorlofi.
Auk þessara reglulegu viðburða eru oft námskeið og annað skemmtilegt á dagskrá. Fylgist með á vefsíðu safnsins og á samfélagsmiðlum.

Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Börn og unglingar 18 ára og yngri fá ókeypis skírteini.

Kynntu þér starfið - Allir með!

 

Nánari upplýsingar:
Opnunartímar: mánudaga-föstudaga 09:00 - 18:00 / laugardaga : 11:00-17:00
Heimasíða Bókasafns Reykjanesbæjar
Facebook síða Bókasafns Reykjanesbæjar
Instagram síða Bókasafns Reykjanesbæjar

Bókasafn Reykjanesbæjar
Tjarnargötu 12 - Sími 421 6770
bokasafn@reykjanesbaer.is

Slóð

bokasafn@bokasafn.is