Bókasafn Reykjanesbæjar kynnir !
Bókasafn Reykjanesbæjar kynnir !
Laugardagar eru fjölskyldudagar á Bókasafninu. Auk þúsunda bóka er dótakista tekin fram og hægt er að lesa og leika með þroskandi leikföng.
Spilum saman: Annan laugardag hvers mánaðar eru hin ýmsu borðspil tekin fram og fjölskyldur hvattar til að mæta og spila saman.
Litum saman: Fyrsta laugardag hvers mánaðar eru fjölbreyttar litabækur, blöð og litir í boði fyrir alla fjölskylduna. Það getur haft hugleiðandi áhrif að lita.
Notaleg sögustund með Höllu Karen: Síðasta laugardag hvers mánaðar kl. 11.30 les Halla Karen og syngur fyrir börn og fullorðna. Halla Karen Guðjónsdóttir hefur lengi verið í Leikfélagi Keflavíkur og segir sögur á leikrænan hátt. Sögustund Höllu Karenar er með vinsælli viðburðum í bókasafninu og alltaf mikil gleði hjá yngstu kynslóðinni.
Foreldramorgnar: Á fimmtudögum kl. 11 eru Foreldramorgnar í Bókasafni Reykjanesbæjar. Boðið er upp á fræðsluerindi síðasta fimmtudag í mánuðinum og notalegt spjall hina fimmtudagana. Öll fræðsluerindi tengjast foreldrahlutverkinu og barnauppeldi á einhvern hátt og eru mæður og feður ungra barna sem og verðandi foreldrar hjartanlega velkomin. Foreldramorgnar hafa verið mjög vinsælir meðal foreldra í fæðingarorlofi.
Aðgangur ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Börn og unglingar 18 ára og yngri fá ókeypis skírteini.
Bókasafn Reykjanesbæjar
Tjarnargötu 12 - Sími 421 6770
bokasafn@reykjanesbaer.is
Opnunartímar
Mánudaga-föstudaga 09:00 - 18:00 / laugardaga : 11:00-17:00
Fylgdu okkur á Facebook
Fylgdu okkur á Instagram
Heimasíða: sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn