Leikjanámskeið Hjálpræðishersins !
Hjálpræðisherinn kynnir !
Á námskeiðinu er mest unnið með frjálsan leik, úti og inni, ásamt föndri og stuttum ferðum. Lagt er upp með að börnin njóti sín sem best og að námskeiðið efli vináttu- og samskiptafærni. Innifalið er: hafragrautur að morgni, heitur matur í hádegi og síðdegishressing.
Hægt er að sækja um í Velferðarsjóð Hjálpræðishersins fyrir námskeiðs gjaldinu, er það gert með því að setja óskina fram undir „annað“ í skráningarferlinu. Vinsamlegast skrifið ástæðu þess að sótt er um styrk.
Hægt er að sækja um á: https://sumar.vala.is/#/login
Kærleikskveðja,
Linda Björk
Verkefnastjóri BUH-Rvk
Sími: 556 0300