Þríþrautardeild UMFN
Í Þríþrautardeild UMFN er lagt stund á sund, hjólreiðar og hlaup.
Deildin heldur utan um skipulagðar æfingar og þjálfun iðkenda deildarinnar ásamt því að halda árlega keppni í þríþraut og götuhjólreiðum.
Við erum ekki með eiginlegt æskulýðsstarf en tel að við getum tekið á móti ungu fólki á framhaldsskólaaldri og allan aldur eftir það.
Erum með menntaða þjálfara í hverri grein. Erum með gríðarlega góða aðstöðu í Vatnaveröld.
Hlaupaæfingar eru nær alltaf utandyra, þó hægt að taka inniæfingu á hlaupabretti fyrir þá sem vilja. Hjólaæfingar eru utandyra nema á veturna, þá æfum við inni. Sundæfingar eru alltaf innandyra.
Hægt að æfa stakar greinar, ekki krafa á neinn að vera í öllum þremur greinunum. Allir ættu að finna sig og stunda þetta sport eftir sinni getu. Þjálfarar halda sérstök byrjendanámskeið sem allir geta nýtt sér hvort sem þeir eru í klúbbnum eða ekki.
Byrjendanámskeið auglýst sérstaklega. Meðfylgjandi er æfingatafla fyrir komandi vetur ásamt nokkrum myndum úr starfinu.