Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Listaskóli barna - Skapandi starf fyrir börn fædd 2012 – 2017.

Listaskóli barna - Skapandi starf fyrir börn fædd 2012 – 2017.

Listaskóli barna!

Listaskóli barna - Skapandi starf fyrir börn fædd 2012 – 2017.
Boðið verður upp á spennandi, hálfs dag sumarnámskeið með áherslu á skapandi starf á vegum menningarfulltrúa í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ.

Markmiðið með Listaskóla barna er að skapa þægilegt og gott andrúmsloft þar sem sköpunargáfa barnanna fær að njóta sín. Námskeiðið er tvíþætt þar sem börnin eru annars vegar í Frumleikhúsinu og taka þátt í spuna, fara í hópeflisleiki og vinna að stuttu frumsömdu leikriti sem sýnt er á Listahátíð í lok námskeiðsins. Hins vegar eru börnin í Svarta-Pakkhúsinu þar sem unnið er með skapandi efnivið sem börnin sýna einnig á Listahátíðinni. Á námskeiðinu er alltaf í boði að fara í útiveru en einnig brjótum við upp hefðbundið skipulag ef veður er sérstaklega gott.

Tvö námskeið verða í boði
A) 10. – 25. júní fyrir hádegi kl. 8:30-11:30
B) 10. – 25. júní eftir hádegi kl. 12:30-15:30

Einungis má skrá hvert barn á eitt námskeið. Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri innan hvors námskeiðs og fá börnin að velja með hverjum þau eru í hóp.
Athugið að þak er á fjölda þátttakenda á námskeiðinu svo hægt sé að sinna hverjum og einum eftir bestu getu.

Í lok námskeiðsins er haldin listahátíð, þriðjudaginn 25. júní kl. 10:30 fyrir börn á námskeiðinu fyrir hádegi og kl. 14:30 fyrir börn á námskeiðinu eftir hádegi, þar sem börnin bjóða fjölskyldu og vinum að sjá afrakstur námskeiðsins.

Staðsetning
Höfuðstöðvar Listaskólans verða í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt verður notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Þátttakendur hefja daginn og ljúka honum í Svarta pakkhúsinu.

Gjald
Námskeiðsgjald er kr. 20.000 og er allt efni innifalið í verðinu.

Innritun
Innritun hefst mánudaginn 13. maí kl. 8:00 hér: https://forms.gle/ovzZ4EjvZ4xkQGgY7

Umsjón
Umsjónarmaður Listaskólans er Halla Karen Guðjónsdóttir sem haft hefur umsjón með Listaskólanum undanfarin ár og með henni er Valur Axel Axelsson.