Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Sérstakur frístundastyrkur !

Sérstakur frístundastyrkur !

Meðal aðgerða stjórnvalda vegna Covid-19 er styrkur sem hægt er að sækja um til sveitarfélaga vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna. Styrkurinn er veittur vegna barna sem eru fædd á árunum 2005–2014 og búa á heimilum þar sem heildartekjur framfærenda, einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks, voru að meðaltali lægri en 740.000 kr. á mánuði á tímabilinu mars–júlí 2020.

Styrkurinn er 45.000 kr. fyrir hvert barn.

Áður en þú sækir um styrkinn hjá þínu sveitarfélagi þarf að kanna hvort heimilið falli undir ofangreint tekjuviðmið. Það gerir þú með því að skrá þig inn hér á Ísland.is með rafrænum skilríkjum. Athugið að sé um hjón/sambúðarfólk að ræða þurfa báðir aðilar að samþykkja að upplýsingar um tekjur séu sóttar til skattayfirvalda (RSK) svo hægt sé að staðfesta hvort heimilið falli undir tekjuviðmiðið eða ekki.

Ef þú færð svar um að þú eigir rétt á að sækja um styrk færð þú nánari upplýsingar um næstu skref. Ef þú færð svar um að þú eigir ekki rétt á styrk færð þú upplýsingar um hvert þú getur leitað ef þú ert með athugasemdir við niðurstöðuna eða fyrirspurnir.

  • Hægt að sækja um styrk til og með 31. júlí.

  • Miðað er við að tómstundariðkunin fari fram á skólaárinu 2020 – 2021 eða yfir sumarið 2021. Athugið að hægt er að koma með kvittanir fyrir íþrótta – og tómstundarstarfi sem greitt var fyrir í upphafi skólaárs eða frá hausti 2020.

Sveitarfélög setja reglur um úthlutun styrkjanna og fyrirkomulag getur verið breytilegt á milli
sveitarfélaga til dæmis varðandi:

  • hvaða íþrótta- og tómstundastarf fellur undir styrkina,

  • hvaða gögnum beri að skila með umsókn,

  • afgreiðslutíma umsókna.

Fyrirspurnum um styrkina skal beina til þíns sveitarfélags.



Á þitt barn rétt á 45.000 kr. sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk? Kannaðu málið hér 

Upplýsingar um styrkinn á öðrum tungumálum - Information on other language press here