
3 N kynnir !
Komdu að æfa með okkur í 3N.
Nýtt tímabil er að hefjast.
Skráðu þig í Njarðvíkurbúðinni á sportabler: https://www.sportabler.com/shop/njardvik/tritraut
Þríþrautardeild UMFN bíður uppá æfingar í þríþraut. Einnig hægt að æfa stakar greinar, sund, hjól eða hlaup.
Æfingar þríþrautardeildar UMFN henta fólki frá framhaldsskólaaldri og uppúr. Líflegur og skemmtilegur hópur af fólki stundar með okkur æfingar allt árið um kring. Yfir sumartímann fækkar skipulögðum æfingum með þjálfara í sundi og hjólreiðum. Samt sem áðru verður hægt að taka sund- og hjólaæfingu á æfingatíma. Hlaupahópurinn starfar nokkuð samfleitt yfir sumartímann.