Æskulýðsfélagið – Fyrir unglinga 13–15 ára (8.–10. bekk)
Æskulýðsfélag (Hefst 14. September)
Æskulýðsfélagið – Fyrir unglinga 13–15 ára (8.–10. bekk)
Safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju - Njarðvíkurbraut 38. (Innri-Njarðvík)
Mánudagar kl. 19:00–20:30
Í æskulýðsfélaginu leggjum við áherslu á skemmtilega samveru, góðan félagsskap og fjölbreytta dagskrá. Við förum í leiki, spilum, föndrum og gerum ýmislegt annað skemmtilegt. Dagskráin er fjölbreytt og við reynum að móta hana eftir áhuga og óskum unglinganna.
Dagskrá kvöldsins
19:00 – Opið hús: spil, spjall og léttar veitingar, t.d. kex, djús og ávextir.
19:30 – Sameiginleg stund með biblíusögu, bæn, söng o.fl.
19:55 – Fjölbreytt dagskrá, t.d. leikir og föndur.
20:25 – Lokastund.
20:30 – Æskulýðsfélaginu lýkur.
Umsjón með æskulýðsfélaginu: Halla Marie Smith, æskulýðsfulltrúi, Kristín Björt Sævarsdóttir og ungleiðtogar Þjóðkirkjunnar.
Í haust verða einnig haldnar tvær unglingamessur í Ytri-Njarðvíkurkirkju.
- október og 9. nóvember. Þegar unglingamessur eru haldnar falla hefðbundnir æskulýðsfundir niður.
Messurnar eru sérstaklega hugsaðar fyrir unglinga og verða í léttu og afslöppuðu sniði.
Þátttaka er ókeypis.
Engin skráning er nauðsynleg – það er bara að mæta.