
Bókasafn Reykjanesbæjar Ævintýri líkast í allt sumar!
Sumar í Reykjanesbæ og flottir lestrarvinningar
Það er gaman að lesa, með því að lesa skemmtilegar bækur og taka þátt í fjölbreyttum sumarlestrarleikjum hjálpum við börnum að viðhalda þeirri lestrarfærni sem náðst hefur í skólanum. Þess vegna leggur Bókasafn Reykjanesbæjar áherslu á yndislestur barna og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í tengslum við sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst.
Lestrarleikirnir í ár eru ekki ólíkir því sem safnið hefur boðið upp á síðustu ár. Þema ársins er Sumar í Reykjanesbæ og boðið verður upp á lestrarspilið Ferðast um Reykjanesið. Einnig verður boðið upp á bingó og orðleit líkt og síðustu ár en jafnframt stefnir safnið á að vera með óvissupakka og skemmtilegt föndur í bókasafninu af og til í sumar, fer allt eftir aðstæðum hverju sinni. Spilaspjaldið verður hægt að nálgast í afgreiðslu safnsins og á rafrænu formi á heimasíðu safnsins. Lesturinn verður hægt að skrá á þátttökuseðil sem hægt verður að skila í Bókasafn Reykjanesbæjar, á heimasíðu safnsins eða í skólabókasafn. Dreginn verður út lestrarvinningur í hverri viku í allt sumar. Auk þess sem sá grunnskóli í Reykjanesbæ sem er með mesta þátttöku nemenda sinna hlýtur bókagjöf í lok sumarlesturs.
Bókasafn Reykjanesbæjar Ævintýri líkast í allt sumar!
Sumarlestur er tilvalin samverustund fyrir fjölskyldur, við hvetjum foreldra til að taka þátt í honum, hjálpa börnum sínum við að velja lestrarefni og hafa gaman af. Lestrarspilin eru frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri.
Öll börn í Reykjanesbæ fá bókasafnskort endurgjaldslaust til 18 ára aldurs gegn ábyrgð foreldris/forráðamanns. Árgjald fullorðinna er 2.200 kr. en ellilífeyrisþegar, atvinnulausir og öryrkjar fá ókeypis bókasafnskort gegn framvísun skírteinis.