Grindavík
Ég- alla leið sjálfstyrkingarnámskeið
Sjálfsmatsnámskeið ætlað stelpun í 6-8. bekk hefst 24. febrúar í Grindavík. Stelpur af öllum Suðurnesjum eru velkomnar á námskeiðið
Hér sameinast sálfræðin, félagsráðgjöfin og jógafræðin með það að markmiði að efla einstaklinginn í átt að betra sjálfsmati.
Markmið námskeiðisins eru:
Að hjálpa ungum stúlkum að efla sjálfsmat sitt og ná sátt við sjálfan sig
Að auka seiglu sem er undirstaða þess að ná árangri
Að skoða sjálfsmyndina og hvernig ákveðið hugsunarmynstur getur viðhaldið lágu sjálfsmati
Að læra gagnreyndar aðferðir til að læra tilfinningastjórn og bjargráð til að takast á við neikvæðar tilfinningar
Að æfa sig í að fara út fyrir þægindarammann
Að skoða staðalímyndir og hvernig þær hafa áhrif á sjálfsmyndina okkar
Læra að setja sér markmið bæði skammtíma og langtíma
Námskeiðið er 1x í víku í sex vikur.
Verð 49.900kr Innifalið í verði er vegleg verkefnabók
A.T.H. takmarkaður sætafjöldi
A.T.H Hægt er að nýta Hvatastyrki og sum verkalýðsfélög taka þátt í námskeiðskostnaði
Bókanir fara fram í skilaboðum hér á facebook eða á eg.allaleid@gmail.com