Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Fimleikadeild Keflavíkur – öll í fimleika!

Fimleikadeild Keflavíkur – öll í fimleika!

Fimleikadeild Keflavíkur – öll í fimleika!

Fimleikadeild Keflavíkur býður upp á fjölbreytt og metnaðarfullt fimleikastarf fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Markmið okkar er að hver iðkandi finni hóp við sitt hæfi, upplifi gleði í hreyfingu og fái tækifæri til að eflast í öruggu, jákvæðu og hvetjandi umhverfi.

Í boði eru meðal annars:

  • Kríla- og krakkafimleikar fyrir yngstu iðkendurna
  • Áhaldafimleikar
  • Hópfimleikar
  • Parkour
  • Fullorðins fimleikar
  • Fimleikar fyrir alla
  • Fimleikar fyrir börn með sérþarfir
  • Fimleikafjör
  • Fjölskyldutímar

Hjá deildinni starfar öflugur hópur þjálfara sem leggur áherslu á faglegt starf, góð samskipti og að tekið sé vel á móti hverjum og einum. Hvort sem markmiðið er að æfa sér til ánægju, efla styrk og sjálfstraust eða stefna á keppni ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Gildi deildarinnar eru Gleði, Árangur og Ástríða og þau endurspeglast í öllu okkar starfi.

Skráning fer fram í gegnum Abler. Við hvetjum foreldra og forráðamenn til að nýta frístundastyrk sveitarfélagsins við skráningu.

Skráning hér: https://www.abler.io/shop/keflavik/fimleikar

Komdu og vertu með – öll í fimleika!