Listanámskeið Fjörheima í sumar fyrir 4-7.bekk
Fjörheimar félagsmiðstöð ætla að bjóða upp á listanámskeið fyrir börn í 4-7.bekk í listarýminu í 88 húsinu í sumar.
Þáttakendur fá kynningu á hinum ýmsu listformum og munu einnig nýta aðstöðuna í félagsmiðstöðinni til að leika og skemmta sér.
Umsjón listanámskeiðsins verður í höndum frístundaleiðbeinanda í Fjörheimum, sem er með háskólamenntun í sjónrænum listum.
Allt tímabilið - 27.júní-21.júlí - mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga - kl 13:00-15:30 - 30.000kr
Hálft tímabilið - Tvær vikur á tímabilinu 27.júní-21.júlí - mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga - kl 13:00-15:30 - 20.000kr
Skráning á Sportabler Fjörheima (linkur hér að neðan) - hægt er að nýta hvatagreiðslur!