Glímudeild UMFN kynnir !
Glíma og gaman Námskeið fyrir krakka í 5.-7. Bekk sem vilja hafa gaman í sumar og læra grunn í glímu og sjálfsvörn með því. Á námskeiðinu læra krakkarnir til dæmis að detta rétt og meiða sig sem minnst, þau læra grunn að sjálfsvörn og aga í íþróttum. Námskeiðið verður í 3 vikur í senn og verður það keyrt þrisvar yfir sumarið. Æft verður alla virka daga frá 09:00-12:00
Glíma og styrkur: Námskeið fyrir krakka sem hafa metnaðinn og viljann til að æfa og verða betra íþróttafólk í sumar. Á þessu námskeiði æfum við allskonar glímugreinar og aðlaga þjálfarar æfinguna að hverjum og einum þannig það geta allir krakkar geta verið með, svo lengi sem þau vilja æfa. Á námskeðinu förum við einnig yfir grunn í allskonar styrktaræfingum. Námskeiðið verður í 3 vikur í senn og verður keyrt þrisvar yfir sumarið. Æft verður alla virka daga frá 13:00-16:00
Tímabil námskeiða:
14. júní - 2. júlí Verð 7.000 Nesti og æfingaföt innifalin
12. - 30. júlí Verð 7.000 Nesti og æfingaföt innifalin
9.- 20. ágúst Verð 7.000 Nesti og æfingaföt innifalin
Nesti og æfingafatnaður innifalinn í verði.
Glíma og styrkur kosta 5000 kr. Innifalið galli.
Glíma og gaman kosta 8000kr Innifalið galli og nesti.
Aðeins er greitt eitt námskeiðsgjald hvort sem börn eru á einu eða þremur námskeiðum.
Skráning á UMFN.is