Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Gönguleiðir og áhugaverðir staðir.

Gönguleiðir og áhugaverðir staðir.

Í sveitafélaginu Vogum eru nokkrir af skemmtilegustu ferðamannastöðum landsins, svo sem Bláa Lónið, Saltfisksetrið í Grindavík, Byggðasafnið á Garðskaga og Fræðasetrið í Sandgerði.

Dæmi um áhugaverða staði í Sveitarfélaginu Vogum.

  • Keilir er 379 metra hátt móbergsfjall. Einkennisfjall Reykjanesskagans. Tiltölulega auðvelt er að ganga á Keili og víðsýnt þegar þangað er komið. Keilir er í um það bil 15 mínútna akstursfjarlægð frá Vogunum.
  • Vogastapi er sunnan Voga. Hann er um 80 metrar yfir sjó og liggur milli Voga og Njarðvíkur. Þar er mikið fuglalíf og fagurt útsýni. Frá Vogunum er um 30 mínútna ganga á Stapann og er Grímshóll hæsta bunga hans. Þar er útsýnisskífa og í góðu skyggni er fjallasýn mikil. Á Vogastapa er reimt og er fjöldi frásagna til af samskiptum Vogamanna og Stapadraugsins.
  • Á milli Voga og Innri Njarðvíkur liggur svokölluð Stapagata, sem er mjög skemmtileg leið.
  • Háibjalli er afar fallegur trjálundur í skjóli kletta, ofan Reykjanesbrautar í aðeins 20 mín göngufjarlægð frá Vogum.
    Frá Háabjalla er útsýni yfir Snorrastaðatjarnir og þaðan er hægt að ganga eftir Hrafnagjá sem er gróðurmikil sprungugjá. Hrafnagjá er misgengi í heiðinni ofan Voga. Gjáin dregur nafn sitt af hröfnunum sem gera sig gjarnan heimankomna þar. Hrafnslaupar eru enn algengir í Hrafnagjá og má sjá gamla og nýja laupa á klettasillum. Gjáin er gróskumikil og má þar meðal annars finna burkna, burnirót, fryggjargras auk algengra gras og lyngtegunda sem víða finnast í heiðinni
  • Skammt frá Háabjalla eru Snorrastaðatjarnir, Þær eru gróskumiklar og mikilvægur áningastaður farfugla vor og haust. Oftast er talað um að tjarnirnar séu þrjár en þær sýnast þó fleiri í vætutíð. Snorrastaðatjarnir og Háibjalli eru á náttúruminjaskrá.
  • Fyrir þá sem kjósa lengri gönguferðir er upplagt að ganga Skógfellaveginn, vörðuð gönguleið til Grindavíkur. Þetta er afar falleg leið yfir fjölbreytt hraun og fjalllendi. Gangan tekur 4-6 klst. Upphaf gönguleiðarinnar er rétt neðan við Háabjalla, s.s. í göngufjarlægð frá Vogum.
  • Kálfatjarnarkirkja var reist árið 1893 og er staðsett á miðri Vatnsleysuströnd. Kirkjan er sannkölluð völundarsmíði og ein stærsta sveitakirkja á landinu.
  • Fjölbreytt og skemmtilegt útivistarsvæði er við Höskuldarvelli. Vegur þangað liggur frá Reykjanesbraut skammt vestan Kúagerðis (merkur Keilir). Við Höskuldarvelli er mikið úrval stuttra gönguleiða. Má þá helst nefna göngu á Keilir , Trölladyngju 379m eða Grænudyngju 402m. Lambafellsklofi er mikilfengleg gjá sem klífur Lambafellið. Gaman er að ganga eftir gjánni inn í fellið og síðan upp úr því. Í Soginu er mikil litadýrð sem langvarandi jarðhiti hefur gefið svæðinu. Þar liðast lítill lækur.