Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Hestanámskeið fyrir börn með sérþarfir

Hestanámskeið fyrir börn með sérþarfir

Hestamannafélagið Máni – Námskeið: Fatlaðir og reiðmennskan

Fatlaðir og reiðmennska er samstarf milli hestamannafélagsins Mána, Reykjanesbæjar,hæfingarstöðvarinnar og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum.

Í nokkur ár hefur hestamannafélagið boðið fötluðum að koma og kynnast hestamennsku og fer þetta fram á hraða hvers og eins. Þau fá að kemba, læra að leggja á, fara á hestbak og margt fl.

Íslenski hesturinn er talinn hafa marga kosti sem nýtast vel við þjálfun fatlaðra, hreyfingar hestsins færast yfir í knapann sem situr hestinn og mjaðmagrind knapans hreyfist svipað og á sér stað í göngumynstri.

Hesturinn veitir knapanum um 90 til 100 göngusveiflur á mínútu og hafa erlendar rannsóknir sínt að hreyfifærni knapans eru m.a. aukinn liðleiki í neðri hluta líkamans, betri höfuð og bolstjórn og jafnvægisviðbrögð.

Aðal áhersla er lögð á að allir hafi gaman

Sú sem er í forsvari fyrir þessa tíma er Guðrún Halldóra (Dódó) Ólafsdóttir
gunnadora1@gmail.com