
Hnefaleikafélag Reykjaness kynnir !
Hnefaleikafélag Reykjaness !
Hnefaleikafélag Reykjaness býður uppá fjölbreyttar æfingar fyrir krakka á grunnskólaaldri og eldri. Hjá félaginu eru
þjálfarar og aðstoðarþjálfarar á öllum aldri sem bjóða uppá krefjandi og skemmtilegar æfingar.
Við hjá HFR ætlum að gera tilraun með nýtt skipulag á starfseminni á nýju ári. Nú verður opið meira á daginn og kvöldtímum fækkar. Nokkrir tímar verða á dagskrá en annars er húsið opið og þjálfari á svæðinu til að veita leiðsögn. Svona viljum við auka getu okkar til þess að taka á móti einstaklingum á mismunandi getustigum þannig að allir fái þjálfun við hæfi. Nýjum iðkendum er bent á að mæla sér mót við þjálfara á opnunartíma áður en mætt er í tíma svo hægt sé að undirbúa viðkomandi fyrir það sem fram fer. Haldið verður byrjendanámskeið í febrúar og auglýst sérstaklega síðar.
OPEN GYM
Hér er salurinn opinn og þjálfari á svæðinu. Iðkendur æfa sig sjálfstætt að leiðsögn þjálfara eða geta fengið einkakennslu. Möguleiki er á að notfæra sér lyftingaaðstöðu í húsinu jafnvel þegar tímar eru í gangi að gefnu leyfi þjálfara.
MORGUNÞREK
Hér er meginuppistaðan ketilbjöllur og liðkunaræfingar en fyrst og fremst er áherslan á það að þú gangir inn í daginn aðeins betri og upplitsdjarfari en áður en þú mættir.
HÁDEGISÞREK
Hér er um að ræða klassíska boxæfingu. Hitað upp, sippað, flétta dagsins kennd og svo unnið á sekki. Aðeins kælt niður og áfram með daginn.
HNEFALEIKASKÓLINN (fyrir 7.-10. bekk)
Hnefaleikaskólinn heldur ótrauður áfram og er fyrirkomulagið hið sama og áður. Foreldrum nýrra iðkenda er bent á að hafa beint samband við þjálfara áður en krakkarnir mæta.
TÆKNITÍMI
Stuttir kvöldtímar með áherslu á tæknikennslu og endurtekningu á undirstöðuatriðunum. Sá eini sem er of langt kominn fyrir undirstöðuatriðin er kominn í gröfina.
Nánari upplýsingar á http://boxing.is
Skráning hér: https://www.sportabler.com/shop/hnefaleikafelagreykjaness
Hnefaleikadeildin er staðsett í Bardagahöll Reykjanesbæjar, Smiðjuvöllum 5