Íþrótta- og hreyfinámskeið í Garði
Í Íþrótta- og hreyfinámskeiðin eru fyrir krakka á leikskólaaldri. Námskeiðið fer fram í Íþróttamiðstöð Garðs á laugardagsmorgnum kl. 11:00
Lögð er áhersla á að börnin skemmti sér og auki jafnframt styrk, kjark, úthald, jafnvægi og samhæfingu í ýmsum leikjum og þrautum. Foreldrar eiga að mæta með börnunum og fylgja þeim í gegnum æfingarnar. Þannig verður þetta frábært tækifæri fyrir foreldra að eiga góða stundir með börnunum.
Athugið að aðeins einn fullorðin má fylgja hverju barni á meðan fjöldatakmarkanir eru í gildi.
Umsjónarmaður er Laufey Erlendsdóttir, íþróttakennari.
Hreyfitímarnir hefjast laugardaginn 30. janúar
Námskeiðsgjald er 3000 kr. Systkinaafsláttur 50%
Minnum foreldra á frístundastyrk barna og ungmenna.
Við hvetjum alla til að mæta hressa og káta og njóta góðra og fjörugra stunda á meðan barnið fær góða þjálfun og útrás.
Facebook: Hreyfinámskeið í Garði