
Íþrótta- og leikjaskóli Keflavíkur 2023
Íþrótta og leikjaskóli Keflavíkur 2023
Íþrótta og leikjaskóli Keflavíkur mun að sjálfsögðu fara fram aftur núna í sumar eftir mjög vel heppnuð námskeið undanfarin ár. Leikjaskólinn mun vera í umsjón Sindra Kristins Ólafssonar sem hefur verið með leikjaskólann undanfarin fjögur ár en honum til aðstoðar í sumar verður Óðinn Jóhannsson.
Tvö námskeið verða í boði í sumar fyrir 5 til 10 ára en eins og fyrri ár verður í boði bæði fyrir og eftir hádegi. Námskeiðin sem eru í boði eru eftirfarandi:
- Fyrra námskeið
* 26.júní til 7.júlí
* Fyrir hádegi: 09:00-11:30
* Eftir hádegi: 13:00 - 15:30
- Seinna námskeið
* 10.júlí til 21.júlí
* Fyrir hádegi: 09:00 - 11:30
* Eftir hádegi: 13:00 - 15:30
Verð: 17:000
Mögulegt er að nota hvatagreiðslur
Skráning fer fram á Sportabler