Íþróttaskóli barna
Íþróttaskóli barna í umsjón Bryndísar
Fjórða árið í röð verður Bryndís Björk Jónsdóttir með íþróttaskóla fyrir börn á leikskólaaldri. Íþróttaskólinn var vel sóttur á síðasta ári.
Bryndís er 29 ára og stundaði sjálf fimleika á sínum yngri árum. Þá hefur Bryndís einnig verið að þjálfa síðustu ár með hléum á milli.
Natalía er henni til aðstoðar.
Tímarnir fara fram á laugardögum
klukkan 11:20 til 12:10.
Hefst 3. október og lýkur 17. apríl. Síðasta laugardag í mánuði er
ekki æfing í íþróttaskólanum.