Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

KFUM og KFUK stendur fyrir hinum sívinsælu leikjanámskeiðum í Reykjanesbæ

KFUM og KFUK stendur fyrir hinum sívinsælu leikjanámskeiðum í Reykjanesbæ

KFUM og KFUK stendur fyrir hinum sívinsælu leikjanámskeiðum í Reykjanesbæ (Félagsheimili KFUM og KFUK, Hátúni 36) í sumar.

Markmið leikjanámskeiðanna er að bjóða börnum á aldrinum 6-9 ára upp á metnaðarfullt sumarstarf þar sem lögð er áhersla á aukinn þroska líkama, sálar og anda. Mikið er lagt upp úr því að mæta hverju barni á eigin forsendum og því mikil áhersla lögð á vináttu, kærleika og virðingu hvert fyrir öðru.

Á hverjum degi er boðið upp á vandaða og fjölbreyttra dagskrá. Má þar nefna útivist, föndur, íþróttir, leiki, vettvangsferðir og fræðslu um lífið og tilveruna út frá kristilegu sjónarmiði. Lögð er áhersla á að hvert barn fái að njóta sín sem best við leiki og störf. Síðasta dag námskeiðis er boðið upp á uppskeruhátíð þar sem grillaðar verða pylsur og safi og karnival í boði.

Námskeiðin standa frá kl. 9:00-16:00 og húsnæðin opna kl. 8:45.

Börnin hafa sjálf með sér nesti fyrir allann daginn; morgunkaffi, hádegismat og síðdegiskaffi. Mælt er með hollu og næringaríku nesti.

Félagsheimili KFUM og KFUK Reykjanesbæ:
Námskeið 1; 7-10 júní 12.600 kr.

Námskeið 2; 13-16 júní 12.600 kr.
Námskeið 3; 20-24 júní 15.700 kr.

Skráning hérna: https://sumarfjor.is/Event.aspx?id=14

Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á kfum@kfum.is eða í síma 588-8899.

Slóð

sumarfjor.is/Event.aspx?id=14