Krílakrútt - foreldramorgnar
Krílakrútt (Hefst 15. September)
Krílakrútt – foreldramorgnar
Safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju - Njarðvíkurbraut 38. (Innri-Njarðvík)
Þriðjudagar Kl. 10:30–12:00
Krílakrútt er notaleg samverustund fyrir ung börn sem eru ekki byrjuð í leikskóla og foreldra eða forráðamenn þeirra. Hér gefst tækifæri til að hitta aðra, spjalla og njóta góðrar samveru á meðan krílin leika sér og kynnast öðrum börnum.
Þátttaka er ókeypis og boðið er upp á veitingar.
Engin skráning er nauðsynleg – það er bara að mæta.
Öll hjartanlega velkomin!