Leik og Sprell í Reykjanesbæ sumarið 2026 !
Leik og Sprell verður í Reykjanesbæ í sumar!
Leik og Sprell er söng- og leiklistarnámskeið sem ferðast vítt og breitt um landið
og er opið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-13 ára.
Allir fá tækifæri til að syngja, leika og sprella. Kenndur er grunnur í söngtækni og
túlkun og farið í leiki sem ýtir undir sköpun og tjáningu.
Út frá lögunum sem börnin hafa valið sér, spuna og leik búum við til sýningu sem er opin fyrir aðstandendur.
5 daga námskeið, kennt 3 klukkustundir í senn, verð: 31.900 krónur. Kennari námskeiðsins er Júlí Mjöll.
Nánari upplýsingar um námskeið, kennara og skráningu má finna á leikogsprell.is
Fyrir allar fyrirspurnir má ávallt einnig hafa samband á leikogsprell@gmail.com
Hlökkum til að sprella með ykkur í sumar!