
Leikjanámskeið fyrir 6 til 8 ára
Við bjóðum uppá leikjanámskeið sem hefst laugardaginn 4. október 🥳
Námskeiðið er ætlað börnum 6–8 ára.
📅 Tími: Laugardagar kl. 11:30–12:30
⏳ Lengd: 6 vikur
💰 Verð: 13.500 kr. fyrir allt námskeiðið
📃 Gjalddagur: 2. október
📍 Staðsetning: Íþróttahús Háaleitisskóla, Lindarbraut 624, 262 Ásbrú 🏠
👉 Skráning fer fram í gegnum Google Forms. https://forms.gle/6ArkUKfngRWjfru2A
Þið fáið tölvupóst með nánari upplýsingum eftir skráningu.
👬 Leiðbeinendur:
Agnar Guðmundsson
Sími: 8619442
Netfang: agnaringihg@gmail.com
Margra ára reynslu í barnastarfi og sem leiðtogi í KFUM og KFUK
Björgvin Margeir Hauksson
Sími: 6508651
Netfang: bjorgvinbjoggi@gmail.com
Margra ára reynslu af barnastarfi og sem leiðtogi í frístundastarfi.
✨ Markmið námskeiðsins
Námskeiðið býður upp á skemmtilega og fjölbreytta leiki þar sem börnin taka þátt í hressandi og uppbyggjandi starfi.
Leikirnir eru fyrst og fremst hugsaðir til skemmtunar en styrkja jafnframt mikilvæga færni, til dæmis:
- Vináttufærni – að læra að vinna saman, deila og virða hvort annað.
- Sjálfstraust – að þora að taka þátt, láta ljós sitt skína og finna styrk sinn.
- Samskiptafærni – að tjá sig, hlusta á aðra og finna lausnir saman.
- Tilfinningastjórn – að takast á við vonbrigði, halda ró sinni og læra að njóta.
- Hreyfifærni og samhæfing – að efla jafnvægi, styrk og lipurð í gegnum hreyfingar.
- Seiglu – að reyna aftur og aftur, þora að gera mistök og halda áfram.
Ef þið hafið einhverjar spurningar, ekki hika við að hafa samband.
Við hlökkum til að sjá ykkur!