Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Listaskóli barna kynnir ! Listaskóli barna kynnir ! Listaskóli barna kynnir !

Listaskóli barna kynnir !

Listaskólinn - Skapandi starf fyrir alla á aldrinum 7 – 12 ára

Boðið verður upp á spennandi, hálfsdags, þriggja vikna sumarnámskeið með áherslu á skapandi starf á vegum menningarskrifstofu í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ.

Markmiðið með Listaskóla barna er að skapa þægilegt og gott andrúmsloft þar sem sköpunargáfa barnanna fær að njóta sín. Námskeiðið er tvíþætt þar sem börnin eru annars vegar í Frumleikhúsinu og taka þátt í spuna, fara í hópeflisleiki og vinna að stuttu leikriti sem sýnt er á Listahátíð í lok námskeiðsins. Hins vegar eru börnin í Svarta-Pakkhúsinu þar sem unnið er með skapandi efnivið sem börnin sýna einnig á Listahátíðinni. Á námskeiðinu er alltaf í boði að fara í útiveru en einnig brjótum við upp hefðbundið skipulag ef veður er sérstaklega gott.

Tímabil

A) 14. júní – 2. júlí (ekki 17.júní)

B) 3.ágúst – 20. ágúst

Tími: Fyrir hádegi: 08:30 – 11:30 eða Eftir hádegi: 12:30 – 15:30

Einungis má skrá hvert barn á eitt námskeið. Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri.

Athugið að þak er á fjölda þátttakenda á námskeiðinu svo hægt sé að sinna hverjum og einum eftir bestu getu.

Í lok námskeiðsins er haldin listahátíð, fimmtudaginn 1.júlí á námskeiði A og fimmtudaginn 19.ágúst á námskeiði B þar sem börnin sýna foreldrum afrakstur námskeiðsins.

Staðsetning

Höfuðstöðvar Listaskólans verða í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt verður notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Þátttakendur hefja daginn og ljúka honum í Svarta pakkhúsinu.

Gjald

Námskeiðsgjald er kr. 15.000 og er allt efni innifalið í verðinu. Innritunargjald greiðist í Svarta pakkhúsinu fyrsta námskeiðsdag og er skilyrði fyrir þátttöku. Veittur er 20% systkinaafsláttur.

Innritun

Innritun hefst mánudaginn 10. maí.

Innritun er á eftirfarandi slóð: https://forms.gle/UmY2CYzzUwnwR7w97 sem opnast mánudaginn 10.maí.