Listaskóli barna sumarið 2026 !
Listaskóli barna!
Skapandi starf fyrir börn fædd 2014 – 2019.
Boðið verður upp á hálfs dags sumarnámskeið með áherslu á skapandi starf á vegum Reykjanesbæjar í samstarfi við Leikfélag Keflavíkur og Félag myndlistarmanna í Reykjanesbæ.
Markmiðið með Listaskóla barna er að skapa þægilegt og gott andrúmsloft þar sem sköpunargáfa barnanna fær að njóta sín. Námskeiðið er tvíþætt þar sem börnin eru annars vegar í Frumleikhúsinu og taka þátt í spuna, fara í hópeflisleiki og vinna að stuttu frumsömdu leikriti sem sýnt er á Listahátíð í lok námskeiðsins. Hins vegar eru börnin í Svarta-Pakkhúsinu þar sem unnið er með skapandi efnivið sem er einnig til sýnis á Listahátíðinni. Á námskeiðinu er alltaf í boði að fara í útiveru en einnig brjótum við upp hefðbundið skipulag ef veður er sérstaklega gott.
Tvö námskeið verða í boði
A) 11. júní – 1. júlí fyrir hádegi kl. 8:30-11:30 (ekki námskeið 17. júní)
B) 11. júní – 1. júlí eftir hádegi kl. 12:30-15:30 (ekki námskeið 17. júní)
Námskeiðið er virka daga og hefst á fimmtudegi og lýkur á miðvikudegi. Einungis má skrá hvert barn á annað námskeiðið. Þátttakendum verður skipt upp í hópa eftir aldri innan hvers námskeiðs og fá börnin að velja með hverjum þau eru í hóp.
Athugið að þak er á fjölda þátttakenda svo hægt sé að sinna hverjum og einum eftir bestu getu.
Í lok námskeiðsins er haldin listahátíð, þriðjudaginn 30. júní kl. 10:30 fyrir börn á námskeiðinu fyrir hádegi og kl. 14:30 fyrir börn á námskeiðinu eftir hádegi, þar sem börnin bjóða fjölskyldu og vinum að sjá afrakstur námskeiðsins. Síðasti dagur námskeiðsins er miðvikudagurinn 1. júlí.
Staðsetning
Höfuðstöðvar Listaskólans verða í Svarta pakkhúsinu að Hafnargötu 2 en jafnframt verður notuð aðstaða í Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17. Þátttakendur hefja daginn og ljúka honum í Svarta pakkhúsinu.
Gjald
Námskeiðsgjald er kr. 22.000 og er allt efni innifalið í verðinu. Gjald fyrir systkini er 18.000kr.
Innritun
Innritun hefst mánudaginn 11. maí kl. 8:00 á eftirfarandi slóð: https://forms.gle/KZg9MthUjJV5p8w4A
Umsjón
Umsjónarmaður Listaskólans er Halla Karen Guðjónsdóttir sem haft hefur umsjón með Listaskólanum undanfarin ár.