NTT – Níu til tólf ára
NTT – Níu til tólf ára
Mánudögum kl. 16:40–18:00 í safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju í Innri-Njarðvík
NTT er skemmtilegt og fjölbreytt starf fyrir börn á aldrinum 9–12 ára, eða í 5.–7. bekk.
Í NTT leggjum við áherslu á góðan félagsskap, gleði og að öll fái að njóta sín. Við förum í leiki, spilum, föndrum, syngjum saman og fræðumst um kristin gildi. Dagskráin er fjölbreytt og við reynum að taka mið af áhuga og óskum barnanna. Hressing er í boði og þátttaka er ókeypis.
Svona lítur venjulegur NTT-fundur út:
16:40 – Opið hús, spil, spjall og hressing
17:00 – Sameiginleg stund með sögu, söng og bæn
17:25 – Fjölbreytt dagskrá, t.d. leikir og föndur
17:55 – Lokastund
18:00 – NTT lýkur
Þátttaka er ókeypis.
Engin skráning er nauðsynleg – það er bara að mæta.
Umsjón: Halla Marie Smith, æskulýðsfulltrúi, Kristín Björt Sævarsdóttir og ungleiðtogar Þjóðkirkjunnar.