
Pólski móðurmálsskólinn
Pólski Skólinn í Reykjavík var stofnaður árið 2008. Skólinn var stofnaður af hópi kennara og foreldra sem vildu auka aðgang að móðurmáli , pólskri sögu og landfræði Póllands til pólskra barna sem dvelja á höfuðborgarsvæðinu. Grundvöllur til að skilja málfræði og stílfræði í erlendum tungumálum er að skilja það rétt á móðurmáli, því er mikilvægt að læra móðurmálið vel. Í pólska skólanum eiga börn möguleika á að auka orðaforðan, einnig að vera í hópi pólskra jafnaldra og tala við kennara um áhugamál sín eða vandamál.
Skólinn er rekinn af Vinafélag Pólska Skólans í Reykjavik. Til vinafélagsins teljast allir foreldrar barna sem stunda nám í Pólska Skólanum og kennarar skólans.
Í augnablikinu hefur skólinn um 361 nemendur á aldrinum 5 til 18 ára, þau stunda nám í bekkjum 0-8 (grunnskóla). 3 (gagnfræðaskóla) og sérstakt nám fyrir þau yngstu (5 ára).
Vinafélagið ræður kennara með viðeigandi menntun sem þarf til að kenna námsfög.
Námskráin felur í sér:
Grunnskóli
Bekkir: 0-3 – stunda aðallega nám pólsku
Bekkur: 4-7 – stunda nám í pólsku, sögu og náttúrufræði
Gagnfræðaskóli
Bekk: 3 – stunda nám í pólsku, sögu, landafræði og félagsfræði
Kennslustundir eru á laugardögum á milli klukkan 9.30 til 14.30 í Fellaskóla, Norðurfelli 17-19, 111 Reykjavík.
Innskráning í skólann er frá maí til júlí.
Borgað er fyrir kennslu mánaðarlega. Mánaðargjöld eru frá 8000kr til 9000kr fyrir fyrsta barn og svo er 50% afsláttur fyrir hvert barn innan sömu fjölskyldu.
Í tilefni þess að “Mikolajki” jólasveinninn heimsækir börnin, gefur hann sætar gjafir eða ef nauðsynlegt birki stangir.
Árlega í janúar er ball fyrir grunnskóla og fyrir gagnfræðaskólann er keppni í þekkingu.
Skólinn býður einnig uppá:
- Bókasafn, þar sem allir geta gerst áskrifendur. Þar eru bækur, orðabækur, orðasöfn, barnabækur, geisladiskar og fleira (um 7000 bækur).
- Tónlistakennsla, talþjálfun og sérkennsla.
- Skólasálfræðingur með ráðgjöf fyrir nemendur og foreldra.
- Skólinn gefur vottorð, sem er hægt að fá á einkunnarspjald frá íslenskum skólum með samþykki skólastjóra viðeigandi skóla. Einkunnir /stig í pólsku tungumáli eru sendar tvisvar á ári til íslenskra skóla þar sem okkar nemendur hafa stunda nám.
- Það er mjög mikilvægt að mörg sveitarfélög sem nemendur okkar koma frá séu að styrkja þetta nám.
Nánari upplýsingar:
Heimasíða Pólska skólans
Vinafélag Pólska Skólans
Þórunnartúni 2, 105 Reykjavík
Sími: (+354) 822 09 25, 822 24 66
fax (00354) 511 11 20
Tölvupóstur: szkola@szkolapolska.is
Kennitala: 520109–2340
Númer bankareiknings: 0117–26–023400
Í mikilvægum málum, vinsamlegast hafðu samband við:
Katarzyna Dreksa , skólastjóra, í síma 822 09 25
Marta Wieczorek, aðstoðarskólastjóra, í síma 822 24 66
Aneta Włodarczyk, umssjónamann bókasafnsis, í síma 820 40 65