Rafíþróttir fyrir fullorðið fatlað fólk
Rafíþróttanámskeið er nýtt námskeið hjá Fullorðinsfræðslu fatlaðs fólks sem haldið er í samstarfi við Rafíþróttadeild Keflavíkur.
Þar ætlar góður hópur að hittast vikulega og spila skemmtilega tölvuleiki undir leiðsögn þjálfara frá Rafík.
Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem og þeim sem eru lengra komin í tölvaleikjaspilun.
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum kl. 17.50 til kl. 19.00 í æfingaraðstöðu Rafík í 88 húsinu.
Námskeiðið hefst 20. september og lýkur 11. nóvember.
Kennari: Alexander Aron
Nánari upplýsingar veitir Jón Kristinn Pétursson í síma 848-2436 eða með tölvupósti á jonkp87@gmail.com
Verð: 8.000
Tímabil: 20. september - 11. nóvember
https://umsokn.inna.is/#!/sc/1363
MSS