SIGLINGANÁMSKEIÐ sumarið 2026
SIGLINGANÁMSKEIÐ 2026
Siglingafélagið Knörr mun bjóða upp á siglinganámskeið fyrir börn og unglinga 9 ára og eldri (fædd 2016 og fyrr). Fyrsta námskeiðið hefst 15. júní. Námskeiðin fara fram í aðstöðu félagsins við smábátahöfnina í Keflavík.
Markmið námskeiðsins er að gefa ungmennum tækifæri til að kynnast sjónum, njóta útiveru og læra hvernig við umgöngumst hann á öruggan og ábyrgan hátt. Á námskeiðunum læra þátttakendur að sigla á kajökum og seglbátum, tileinka sér helstu öryggis- og siglingareglur og kynnast góðri umgengni um báta og búnað.
Auk þess fá börnin að:
- kynnast lífríki sjávar og strandar
- prófa veiðar og skoða krabbagildrur
- læra einföld og nytsamleg hnútatök
- taka þátt í leikjum og verkefnum sem tengjast sjómennsku og útivist
- spreyta sig á skapandi verkefnum, t.d. bátasmíði þegar veður leyfir ekki siglingar
Lögð er áhersla á fjölbreytta, skemmtilega og þroskandi dagskrá þar sem leikur og nám fara saman. Nemendur fá tækifæri til að byggja upp sjálfstraust, efla samvinnu og öðlast góðan grunn í siglingum og sjómennsku.
Kennt er í aðstöðu Knarrar við smábátahöfnina í Keflavík.
Sumar námskeið fyrir börn:
- Námskeið 15. - 19. júní, kl. 09:00-12:00
- Námskeið 15. - 19. júní, kl. 13:00-16:00
- Námskeið 29. Júní - 3. Júlí, kl. 09:00-12:00
- Námskeið 29. Júní - 3. Júlí, kl. 13:00-16:00
Önnur námskeið verða auglýst síðar.
Hefur þig alltaf dreymt um að læra að sigla? ⛵
Nú býður Siglingafélagið Knörr upp á nýtt námskeið fyrir fullorðna – og það besta er að þú getur komið með barninu þínu!
Hvort sem þið eruð vinahópur, mæðgur, feðgar eða einfaldlega ævintýragjarnir einstaklingar, þá er þetta frábært tækifæri til að prófa eitthvað nýtt saman, njóta útiveru og læra að sigla í góðum félagsskap.
Engin reynsla nauðsynleg – bara löngun til að læra og hafa gaman á sjónum
Kvöldnámskeið fyrir fullorðna (t.d. foreldrar með börnunum sínum):
- Námskeið 1. – 4. Júní, 18:00-20:00
- Námskeið 15. - 19. júní, kl. 18:00-20:00
Önnur námskeið verða auglýst síðar.
Sviðmyndir af námskeiðum félagsins síðastliðið sumar má sjá á facebooksíðu félagssins https://www.facebook.com/KnorrSailing
Námskeiðsgjald: 15.000 kr á mann
Skráning: Til að skrá sig á námskeið þarf að senda eftirfarandi upplýsingar á knorrsailing@gmail.com
Númer námskeiðs:
Nafn:
Kennitala:
Heimilisfang:
Nafn forráðamans:
Símanúmer:
Netfang: