
Slökun í vatni með Aqua Jóga
Slökun í vatni með Aqua Jóga
Fyrir hverja: 16 ára+
Hvar: sundlaug Akurskóla
Hvenær: á laugardögum, nánari upplýsingar á Facebook síðu Aqua Jóga (https://www.facebook.com/aquajoga)
Kostnaður: 1500 kr.
Í Slökun í vatni kemur þú í sundlaugina með viðeigandi búnað og ef þú átt hann ekki til þá færðu hann lánaðan hjá Aqua Jóga. Saman ætlum við að slaka á og njóta þyngdarleysis í heitri sundlauginni.
Ég skapa rétta andrúmsloftið í notalegri lauginni, er með slakandi tónlist og allt það sem þarf til að skapa heilandi, rólega og afslappandi stund í vatninu.
Slökun í vatni er opin öllum. Lánssett eru í boði fyrir þá sem eiga ekki sitt eigið sett. Stakur tími kostar 1500 kr.
Hvíld og verkjalosun, bættur svefn og meiri ró er meðal þess sem þakklátir þátttakendur í Slökun í vatni hafa nefnt sem ástæðu þess að þeir koma aftur og aftur.
Verið velkomin í Slökun í vatni í sundlaug Akurskóla, Innri-Njarðvík