Sumarið hjá DansKompaní 2026
Sumarið hjá DansKompaní 2026
Vertu með okkur í sumar! DansKompaní býður upp á tvær skemmtilegar leiðir fyrir krakka, ungmenni og fullorðna til að dansa, skapa og efla sjálfstraustið í góðum félagsskap.
Sumardans
3ja vikna dansnámskeið fyrir 4 ára og eldri, ungmenni og fullorðna. Námskeiðið er frábær kynning á dansnáminu og góður undirbúningur fyrir vetrarstarfið. Æft er 2x í viku frá 15. júní til 3. júlí.
Sumarsmiðja
Skapandi sumarnámskeið fyrir 6–9 ára og 10–12 ára, frá kl. 12:00–15:00 alla virka daga. Þar er unnið með dans, leiklist, söng, hópefli og skapandi verkefni — bæði inni og úti. Hægt er að skrá sig í eina, tvær eða þrjár vikur.
Skráning er hafin