
Sumarlestur á bókasafninu
Leitin að ævintýraheimum!
Sumarlestur fyrir börn á grunnskólaaldri á Bókasafni Suðurnesjabæjar við Suðurgötu í Sangerði í júní og júlí.
Ókeypis þátttaka. Skráning á Bókasafni Suðurnesjabæjar og á skólabókasafninu í Gerðaskóla frá 1. júní. Það má skrá sig og hefja þátttöku hvenær sem er á tímabilinu júní til júlí.
Við skráningu fá börnin veggspjald. Í hvert sinn sem þau skila bók eða lesa bók á safninu, fá þau límmiða til að líma á veggspjaldið. Á veggspjaldinu eru 8 lönd sem börnin ferðast á milli. Eyjarnar eru með eftirfarandi þema í myndefni:
1.Spenna/hryllingur (hér er líka t.d. ráðgátubækur)
- Grín og gaman
- Fantasía (galdrar, drekar, tröll, álfar og önnur yfirnáttúruleg fyrirbæri)
- Dýrin
- Íþróttir
- Vísindi/tækni
- Fyrir langa, langa löngu (bækur sem gerast í gamla daga, víkingar, norræn eða grísk goðafræði, riddarar, sveitin)
- Teiknimyndasögur
Góða skemmtun í sumarlestri krakkar í Suðurnesjabæ