Sumarlestur Bókasafns Grindavíkur
Sumarlesturinn hjá bókasafninu byrjar 20. júní og stendur til 13. ágúst. Sumarlesturinn er hugsaður fyrir börn fædd 2010-2016.
Þau fá lítil verðlaun eftir 5, 10, 15 og 20 lesnar bækur og gert er ráð fyrir að þau lesi bækur sem hæfa þeirra getustigi og lestrarkunnáttu.
Rannsóknir sýna að börn sem lesa yfir sumarmánuðina standa betur að vígi þegar skóli hefst aftur að hausti og hafa glatað minna af lestrarhraða sínum og lesskilningi.