Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Sumarlestur Bókasafns Reykjanesbæjar

Sumarlestur Bókasafns Reykjanesbæjar

Grimm lestrarspil og flottir lestrarvinningar

Það er gaman að lesa, með því að lesa skemmtilegar bækur og taka þátt í fjölbreyttum sumarlestrar leikjum hjálpum við börnum að viðhalda þeirri lestrarfærni sem náðst hefur í skólanum. Þess vegna leggur Bókasafn Reykjanesbæjar áherslu á yndislestur barna og býður upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá í tengslum við sumarlestur frá 1. júní til 31. ágúst.

Lestrarleikirnir í ár eru ekki ólíkir því sem safnið hefur boðið upp á síðustu ár. Þema ársins eru Grimmsævintýri og boðið verður upp á spil með gömlu ævintýrunum auk Jóa og baunagrassins fyrir þá sem ekki eru stemmdir fyrir grimmari sögum. Við verðum einnig með bingó og orðleit líkt og síðustu ár en jafnframt stefnir safnið á að vera með óvissupakka og skemmtilegt föndur í bókasafninu af og til í sumar, fer allt eftir aðstæðum hverju sinni. Spilaspjaldið verður hægt að nálgast í afgreiðslu safnsins og á rafrænu formi á heimasíðu safnsins. Lesturinn verður hægt að skrá á þátttökuseðil sem hægt verður að skila í Bókasafn Reykjanesbæjar, á heimasíðu safnsins eða í skólabókasafn. Dreginn verður út lestrarvinningur í hverri viku í allt sumar. Auk þess sem sá grunnskóli í Reykjanesbæ sem er með mesta þátttöku nemenda sinna hlýtur bókagjöf í lok sumarlesturs.

Bókasafn Reykjanesbæjar Ævintýri líkast í allt sumar!

Sumarlestur er tilvalin samverustund fyrir fjölskyldur, við hvetjum foreldra til að taka þátt í honum, hjálpa börnum sínum við að velja lestrarefni og hafa gaman að. Lestrarspilin eru frábær skemmtun fyrir fólk á öllum aldri.
Öll börn fá bókasafnskort endurgjaldslaust til 18 ára aldurs gegn ábyrgð foreldris/forráðamanns. Árgjald fullorðinna er 2.050 kr. en ellilífeyrisþegar, atvinnulausir og öryrkjar fá ókeypis bókasafnskort gegn framvísun skírteinis.