Sumarnámskeið í Þekkingarsetrinu
Þekkingarsetur Suðurnesja á Garðvegi 1 í Suðurnesjabæ mun í sumar bjóða upp á námskeið fyrir hressa krakka á aldrinum 7-12 ára. Á námskeiðunum verður ýmislegt skemmtilegt brallað, bæði úti og inni, sem flestir ættu að hafa gaman að. Námskeiðin eru ókeypis en þátttakendur þurfa að mæta klæddir eftir veðri og með nesti með sér.
Námskeið 1 – 5. – 9. júlí frá kl. 9:00-12:00
Fyrir 7-9 ára (börn fædd 2012-2014)
Námskeið 2 – 12. – 16. júlí frá kl. 9:00-12:00
Fyrir 10-12 ára (börn fædd 2009-2011)
Námskeið 3 – 19. – 23. júlí frá kl. 13:00-16:00
Fyrir 7-9 ára (börn fædd 2012-2014)
Námskeið 4 – 26. – 30. júlí frá kl. 13:00-16:00
Fyrir börn 10-12 ára (börn fædd 2009-2011)
Umsjónarmenn eru María Árelía Guðmundsdóttir og Salka Lind Reinhardsdóttir