Sumarnámskeið Rafíþróttadeildar Keflavíkur 2026 !
Sumarnámskeið í rafíþróttum 2026 hjá Rafíþróttadeild Keflavíkur !
Sumarnámskeið í rafíþróttum eru ætluð börnum (blandaðir hópar) og
unglingum á aldrinum 7–13 ára sem vilja spila, læra og bæta færni sína í
tölvuleikjum.
Námskeiðin fara fram í húsnæði Rafiks í Keflavík og eru opin
öllum sem hafa áhuga á leikjum og íþróttum.
Um hvað snýst þetta?
Fyrst og fremst er markmiðið að hafa gaman og eignast nýja vini. Við bjóðum
upp á öruggt og jákvætt umhverfi þar sem börn læra að vinna saman og eiga
samskipti með því að spila tölvuleiki. Við leggjum einnig áherslu á góða hegðun
á netinu, rétta líkamsstöðu við tölvunotkun, daglega hreyfingu og útivist.
Hvað er innifalið?
Sumarnámskeiðið felur í sér fimm daga af tölvuleikjaspilun, auk útivistar og
íþrótta á völdum dögum. Að auki fá þátttakendur eina viku frítt í prufu hjá Rafik
yfir hausttímann. Vikunni lýkur með pizzaveislu.
Hvenær og hvar?
Sumarnámskeiðið fer fram í húsnæði okkar að Hringbraut 108 í Keflavík og
stendur yfir í fjórar vikur í sumar, frá mánudegi til föstudags, að undanskildri
annarri viku þar sem þjóðhátíðardagur er 17. júní og námskeiðið stendur þá til
laugardags. Sum önnur verkefni kunna að fara fram á mismunandi stöðum í
kringum Keflavík.
● Vika 1: 8. júní – 12. júní
● Vika 2: 15. júní – 20. júní (17. júní er þjóðhátíðardagur)
● Vika 3: 6. júlí – 10. júlí
● Vika 4: 13. júlí – 17. júlí
Í hverri viku eru tveir hópar, að hámarki 15 þátttakendur í hvorum hópi:
● Fyrri hópur: 09:00 – 12:00
● Seinni hópur: 13:00 – 16:00
Hvað kostar?
Þátttökugjaldið er 32.000 kr. á barn og 10% systkinaafsláttur er í boði.
Vantar frekari upplýsingar?
Hafðu endilega samband við okkur á Facebook/Instagram eða sendu tölvupóst
á rafik@rafik.is. Við hlökkum til að hitta ykkur!