Fara í efni
Hafa samband Frístundastyrkir

Mikilvægar upplýsingar

Hafa samband

Grindavíkurbær: 420 1100 / grindavik@grindavik.is

Reykjanesbær:  421 6700 / reykjanesbaer@reykjanesbaer.is

Suðurnesjabær: 425 3000 /afgreidsla@sudurnesjabaer.is

Sveitarfélagið Vogar: 440-6200 /skrifstofa@vogar.is

Frístundastyrkir

Nánari upplýsingar um frístundastyrki sveitarfélaganna á Suðurnesjum;

Grindavík

Reykjanesbær

Sérstakur frístundastyrkur vegna Covid

Suðurnesjabær

Vogar

Sumaropnun félagsmiðstöðva í Suðurnesjabæ

Sumaropnun félagsmiðstöðva í Suðurnesjabæ

Bæði Elding og Skýjaborg verða opnar á mánudögum og miðvikudögum í júní fyrir börn og ungmenni í 7.-10.bekk.
Mánudagar kl. 20:00-22:00
Miðvikudagar kl. 20:00-22:00

Fjölbreyttir viðburðir voru í boði í sumar fyrir ungmennin en lögð var áhersla á virkni og
útiveru.

Upplýsingar um félagsmiðstöðvarnar:

Í Suðurnesjabæ eru tvær félagsmiðstöðvar fyrir ungmenni, félagsmiðstöðin Elding og félagsmiðstöðin Skýjaborg.

Félagsmiðstöðvar eru mikilvægur þáttur í lífi barna og unglinga og gegna því veigamikla hlutverki að sinna tómstunda- og félagsmálum utan hefðbundis skólatíma. Markhópur félagsmiðstöðvanna eru ungmenni í 8.-10. bekk, en einnig er í boði starf fyrir 5.-7.bekk. Félagsmiðstöðvar eiga að stuðla að jákvæðum og þroskandi samskiptum meðal barna og unglinga og örva félagsþroska þeirra og lýðræðisvitund. Starfsemi félagsmiðstöðvanna er skipulögð af ungmennunum sjálfum í samráði við starfsfólk.

Boðið er upp á fjölbreytt skipulagt tómstundastarf þar sem flestir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Mikilvægt er að börn og ungmenni finni að þau séu velkomin og talað sé við þau á jafnréttisgrundvelli. Einnig gegnir félagsmiðstöðin ákveðnu forvarnarhlutverki, hvort heldur sem er í gegnum leik eða skipulögðu forvarnarstarfi.

Félagsmiðstöðin Elding Garði
Félagsmiðstöðin Skýjaborg Sandgerði

Tómstundafulltrúi og forstöðukona er Elín Björg Gissurardóttir.

Netfang: elin@sudurnesjabaer.is

Slóð

/is