Sumarsund ÍRB fyrir 6 til 9 ára
SUMARSUND ÍRB
FYRIR BÖRN FÆDD 2017–2020 (6–9 ÁRA)
7 skipta námskeið fyrir börn fædd árið 2017–2020.
Áhersla lögð á köfun, flot, grunnsundtækni í öllum sundaðferðum og stungur. Æfingar fara fram í grunni og djúpri laug (ef er eftir getu sundmanns). Æfingar fara að mestu fram í gegnum leik og leiklíkar æfingar.
Námskeiðið fer fram í júní á eftirfarandi dögum:
15., 16., 18., 22., 23., 24., 25. júní.
Hægt er að velja að vera í Stapalaug eða Vatnaveröld.
Tvær tímasetningar í boði:
10:15 – 11:15
11:15 – 12:15
Námskeiðsgjald: 15.000 kr.
Skráning á abler