
Sundeild Keflavíkur/ Njarðvíkur og ÍRB kynna
Sunddeild Keflavíkur/ Njarðvíkur og ÍRB býður uppá fjölbreyttar æfingar fyrir stráka og stelpur á öllum aldri. Hjá deildinni starfa vel menntaðir og reynslumiklir þjálfarar sem bjóða uppá krefjandi og skemmtilegar æfingar.
Vertu með í sundi í vetur og skráðu þig
Byrjun tímabils – Innritun – Prufuæfngar
2022-2023
Allir sundmenn verða innrita sig og ganga frá gjöldum fyrir tímabilið.
Innritun hófst 12. ágúst
https://www.sportabler.com/shop/sundradirb/sund
Allir nýir sundmenn 6 ára og eldri verða að mæta á prufuæfingu í Akurskóla þriðjudaginn 16. ágúst kl. 16:30 -17:30.
Þar metur Jóna Helena þjálfari hvaða hópur hentar best hverjum og einum.
Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Akurskóla. Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, S: 849-0222 netfang: jonahelena@gmail.com
Sundskólahóparnir Gullfiskar og Silungar raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Löxum og upp úr er raðað eftir getu. Eingöngu nýir meðlimir fara á prufuæfingu.
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir voru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.
Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú hér gjaldskrána, æfingartöflur og upplýsingar um æfingahópana okkar.
Afrekshópur og Framtíðarhópur fóru af stað í júlí
Æfingar hjá Háhyrningum og Sverðfiskum í Vatnaveröld hófust 18. ágúst.
Æfingar hjá öllum yngri hópum hefjast fimmtudaginn 25. ágúst.
Gjaldkerar félagsins veitir upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur.
Gjaldkeri er Lilja Dögg Karlsdóttir
GSM: 821 6379 Netfang: gjaldkeri.sk@gmail.com
Heimasíða UMFN - en þar má finna upplýsingar um æfingatöflu og þess háttar.
Facebook síða Sunddeildar ÍRB
https://www.facebook.com/sundradirb