Úlfatími
Úlfatími ( Hefst 16. September)
Ytri-Njarðvíkurkirkja - Njarðvíkurbraut 38. (Innri-Njarðvík)
Miðvikudagar Kl. 16:15–17:00
Úlfatími – notaleg fjölskyldustund
Úlfatíminn er sérstaklega ætlaður elstu börnum leikskólans og börnum á yngsta stigi grunnskólans ásamt fjölskyldum þeirra. Foreldrar, forráðamenn og systkini eru því hjartanlega velkomin með. Úlfatíminn er róleg og notaleg fjölskyldustund þar sem við komum saman, syngjum, hlustum á Biblíusögur og gerum léttar og skemmtilegar hreyfiæfingar með börnunum. Allt er á léttu og afslöppuðu nótunum og að sjálfsögðu fáum við okkur líka eitthvað gott í gogginn.
Það kostar ekkert að taka þátt og öll eru hjartanlega velkomin!